Verið velkomin á heimasiðu Indverska Sendiráðsins í Oslo

Indland er annað stærsta land í heimi þegar horft er til fólksfjölda og sjöunda stærst í röðinni að flatarmáli. Sjötti hver einstaklingur í heiminum er frá Indlandi. Indland er fjórða stærsta ríki í efnahagsmálum. Indland er lýðveldi og hefur verið stærsta lýðverldisríki síðan það fékk sjálfstæði frá Bretum árið 1947.

Samband Íslands og Indlands hefur verið farsælt frá upphafi. Það hefur styrkst að undanförnu því háttsettir embættismenn frá báðum þjóðum hafa farið í opinberar heimsóknir. Þar má nefna Íslands heimsókn forseta Indlands Dr. A.P.J. Abdulkalam í maí 2005. Á næstu mánuðum er fyrirhuguð heimsókn Forseta Íslands, Forsetisráðherra og Forseta Alþingis og mun sú heimsókn styrkja samband þessara ríkja enn meir.

Samband Íslands og Indlands fer vaxandi í viðskiptum, fjárfestingum og sameiginlegum verkefnum. Árið 2005 voru viðskipti milli þessara þjóða um 1.3 billion ISK. Sjá töflu að neðan

 
 
Íslendingar hafa mikinn áhuga á að ferðast um Indland sem er svo litríkt land. Indland er eitt af elstu stórveldunum. Landið hefur háfjöll eins og Himalaya og stórfljót eins og Ganges og Brahmputra. Indverjar eru stoltir gestrisnir, nægjusamir og sýna mikla sveigjanleika í mannlegum samskiptum. Austurlensk dulfræði, joga og indversk matargerð hafa vakið mikla athygli Íslendinga og finna ástæðu til að sækja Indland heim.

Það er auðvelt að ferðast til Indlands frá flestum stórborgum Evrópu. Besti tími fyrir Íslendinga að ferðast til Indlands er frá Oktober til Mars en þá er vetur á Indlandi.
Allir Norðmenn og Íslendingar verða að hafa vegabréfsáritun til þess að komast til Indlands. Vegabréfsáritun er hægt að fá hjá Indverska Sendiráðinu í Óslo.

Það búa 222 einstaklingar á Íslandi sem eru fæddir á Indlandi.

Indland hefur 2 ræðismenn á Íslandi.

Í Reykjavík:

Mr. Elias Gunnarsson

Hr. Elías Gunnarsson,
Aðalræðismaður Indlands
Sólvallagata 5
101 Reykjavík
Sími. +354 5615000
Símbréf: +354 5623809
Netfang: elias@meka.is

 

Í Akureyri:

Hr Girish Hirlekar

Ræðismaður Indlands
Kotárgerði 16
600 Akureyri
Sími: +354 4630100
Símbréf: +354 4624621
Netfang: girhir@nett.is
girish@fsa.is

 
Upplýsingar um Indland á heimasíðunni eru að mestu ensku. Það gefur skemmtilega mynd af landi í hnotskurn. Það er okkar von að ykkur mun finnast það spennandi og skemmtileg.